Karfan er tóm!
Fjársjóðurinn - ævintýrabók
Fjársjóðurinn
5+ ára
Bókin Fjársjóðurinn hefur verið kennd í grunnskólum, leikskólum og sérskólum. Við kennslu er beitt nýrri kennsluaðferð sem nefnist Listaaðferðin sem slegið hefur rækilega í gegn. Tilgangur bókarinnar er að koma með námsefni og aðferðir sem henta vel fyrir einstaklingsmiðað nám.
Með bókinni fylgir geisladiskur með 15 sönglögum og fjórum dönsum
Textanum í bókinni er skipt niður í stutta kafla með misstórum stigum og eru frá einu og upp í fimm þrep. Lesendum er ætlað að velja sér þrep eftir lestrargetu.
Bókin segir frá drengjunum Tuma og Trölla. Dag einn kemur vinkona þeirra Sigurpála póstur með ævagamlan trékassa sem inniheldur uppdrátt með leiðinni að dýrmætum sjóræningjafjarsjóði. Drengirnir ákveða að finna fjarsjóðinn og lenda í ýmsum erfiðleikum á ferðalagi sínu, en syngjandi sigrast þeir á hverri þraut..
Höfundur bókarinnar er Ólafur Beinteinn Ólafsson, sönglög syngur Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir og myndskreytingar annaðist Dagný Emma Magnúsdóttir.
Verðlaun: Hvatningarverðlaun menntasviðs Reykjavíkurborgar sem eitt af þremur bestu skólaþróunarverkefnum borgarinnar skólaárið 2006-07.




