Karfan er tóm!
Fyrirtækið
Velkomin í netverslunina ABC Leikföng.is
Við eigendurnir eignuðumst yndislega dóttur árið 2009 og er hún fjórða barn okkar. Frá því að fyrsta barnið okkar fæddist hafa orðið miklar breytingar á leikföngum. Háværar hringlur og spiladósir þekkjast varla meðal leikfanga í dag.
Eitt barna okkar á við seinþroska að stríða og hafa þroskaleikföng, leikir og önnur nýtanleg kennslugögn hjálpað henni mikið í gegnum hennar þroskaskeið. Við höfum þó þurft að leita víða til að finna tól og verkfæri sem hentuðu henni. Framboð á markaðnum hérlendis af slíkum vörum, er mjög takmarkað, sem varð til þess að við fórum að leita erlendis með hvað væri í boði sem hentaði okkar barni. Í framhaldi af þessari reynslu okkar ákváðum við því að opna vefverslunina abcleikfong.is svo fleiri foreldrar en við hefðu tækifæri til að kaupa þroskaleikföng.
Með því að opna vefverslun, viljum við bjóða upp á skapandi og gefandi leikföng sem efla skilning barna og sem hentar hverju þroskastígi. Ef við fáum góðar viðtökur munum við auka vöruúrvalið frá okkar framleiðendum því þar er mikið í boði. Markmið okkar er að leitast ávallt við að bjóða lágt verð á gæðavörum fyrir börn á öllum aldri. Við munum einnig vera með fjölbreytt úrval af barnavörum og barnafatnaði.
Við erum með verslun að Súðarvogi 7, 2. hæð, þar sem hægt era ð koma og skoða/kaupa vörurnar. Opnunartími er auglýstur á forsíðu okkar, ef óskað er eftir öðrum tímum, hafið endilega samband við okkur á info@abcleikfong.is eða í síma 841-6600. Ekki vera feimin við að hafa samband.
Við reynum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og mögulegt er.
Félagið:
ABC Leikföng
S&B Ásfjall slf
Súðarvogi 7, 2. hæð
104 Reykjavík
Netfang: info@abcleikfong.is
Kennitala: 711209-2120
Rekstraraðili: S&B Ásfjall slf
Virðisaukanúmer: 103669
Sími: 841-6600
ABC Leikföng.is er á facebook


