Karfan er tóm!
Hlemmur - leikbúningur
Hlemmur - skapandi leikfang
2 - 10 ára
Hlemmur er hjálmur með útskornum formum í. Einnig er hægt að búa til hólf með því að festa tvo eða fleiri saman.
Fáanlegur í 6 mismunandi litum: rauður, blár, grænn, gulur, appelsínugulur og fjólublár. Veldu þinn uppáhalds lit!
Framleitt í Nepal úr 100% þæfðri ull. Fair trade siðgæðisvottuð framleiðsla.
Hlemmur einkennilega útlítandi hattur sem einnig má nota sem tösku eða ílát.
Fafu hannar og framleiðir skapandi leikföng fyrir börn. Til að ná fram opnum áhrifum á leik barna eru vörur Fafu hannaðar út frá formum, litum og rýmislögmálum og þannig skapast vettvangur fyrir sköpun og uppgötvanir barna. Sérstök áhersla er lögð á að taka mið af umhverissjónarmiðum við hönnun og framleislu varanna og því er eingöngu notast við náttúruleg eða endurunnin hráefni.





