Karfan er tóm!
Smella - leikbúningur
Smella - skapandi leikfang
2 - 10 ára
Smella er tvöföld skikkja sem er þakin smellum til að útvíkka virkni hennar. Búðu til þína eigin útgáfu af smellunni með því að gera ermar, hettu eða vasa. Smelltu tveimur eða fleiri skikkjum saman til að búa til hús, risastórt pils eða hvað sem þér kemur til hugar.
Fáanleg í 7 litasamsetningum:
- gul/blá
- fjólublá/græn
- gul/rauð
- gul/græn
- blá/græn
- fjólublá/svört
- blá/svört
Framleitt á Indlandi úr 100% lífrænni og Fairtrade siðgæðisvottaðri bómull.
Fafu hannar og framleiðir skapandi leikföng fyrir börn. Til að ná fram opnum áhrifum á leik barna eru vörur Fafu hannaðar út frá formum, litum og rýmislögmálum og þannig skapast vettvangur fyrir sköpun og uppgötvanir barna. Sérstök áhersla er lögð á að taka mið af umhverfissjónarmiðum við hönnun og framleiðslu varanna og því er eingöngu notast við náttúruleg eða endurunnin hráefni.








